Þetta snýst um börnin
Framsókn vill að Reykjavíkurborg setji hagsmuni barna ávallt í fyrsta sæti.
- 01Koma á fót fjölskyldumiðstöð sem þjónustar börn og barnafjölskyldur og einfaldar samskipti við borgina.
- 02Innleiða farsældarlögin betur inn í allt starf borgarinnar og tryggja börnum snemmtækan stuðning.
- 03Gera Reykjavíkurborg að þátttakanda í verkefninu Barnvænt sveitarfélag á vegum UNICEF, með það að markmiði að styrkja réttindi og velferð barna.
- 04Bjóða börnum 18 ára og yngri frítt í sund.
- 05Bjóða grunn- og framhaldsskólanemum gjaldfrjálst í Strætó.
- 06Endurnýja leikvelli, með sérstakri áherslu á bætt aðgengi og skemmtilegra leikumhverfi.
- 07Efla barnaverndarþjónustu og úrræði barnaverndar.
- 01Eyða biðlistum eftir leikskólaplássum og fjölga leikskólum.
- 02Mæta fjölskyldum betur með auknum sveigjanleika í þjónustu leikskóla.
- 03Bæta viðhald og aðbúnað í leikskólum.
- 04Styðja fjölbreytt rekstrarform, svo sem dagforeldra og fyrirtæki sem vilja opna leikskóla eða daggæslu.
- 05Jafna greiðslur foreldra fyrir leikskóla og dagforeldra frá 12 mánaða aldri.
- 06Bjóða heimgreiðslur fyrir börn sem bíða eftir dagvistun.
- 07Styðja við opnun opinna leikskóla í öllum hverfum fyrir börn og foreldra í fæðingarorlofi.
- 08Koma á systkina- og hverfisforgangi í leikskóla.
- 09Efla íslenskukennslu starfsfólks og setja skýr viðmið um íslenskukunnáttu.
- 10Fjölga leikskólakennurum og leikskólaliðum í samstarfi við ríkið.
- 11Bæta starfsaðstæður barna og starfsfólks, meðal annars með því að bæta loftgæði, hljóðvist, birtu og öryggi.
- 12Auka samstarf ungbarnaverndar og félagsþjónustu fyrir börn og foreldra þeirra í samstarfi við ríkið.
- 01Veita börnum framúrskarandi menntun í grunnskólum borgarinnar sem stuðlar að því að þau geti nýtt hæfileika sína til fulls og undirbýr þau fyrir framtíðina.
- 02Tryggja gott húsnæði, heilnæman skólamat og öryggi í grunnskólum.
- 03Taka upp samræmt námsmat í öllum árgöngum.
- 04Innleiða símafrí í grunnskólum.
- 05Koma á námsverum fyrir nemendur sem þurfa á stuðningi að halda í alla grunnskóla og fjölga einhverfudeildum.
- 06Tryggja að börn með náms- eða hegðunarerfiðleika fái þjónustu í sínum skóla.
- 07Veita sérfræðiþjónustu, líkt og sálfræðiþjónustu, í skólum.
- 08Innleiða jákvæða sálfræði og núvitundarkennslu í grunnskóla til að auka seiglu og kenna börnum að draga úr álagi.
- 09Efla íslenskukennslu barna af erlendum uppruna og opna íslenskuver fyrir börn í 1.–10. bekk í öllum grunnskólum.
- 10Styðja við heimanámsaðstoð.
- 11Bjóða foreldrum af erlendum uppruna ókeypis íslenskunámskeið í skólum borgarinnar.
- 12Efla stuðning við skólastjórnendur og kennara.
- 13Bæta námsgagnakost grunnskóla í samstarfi við ríkið.
- 14Bæta aðgengi í eldri skólum og tryggja að við hönnun nýrra skóla sé aðgengi í fyrir öll börn.
- 15Styrkja list- og verkgreinakennslu og aðstöðu til útináms.
- 01Bjóða upp á eina fría frístund fyrir 5–18 ára á ári og bjóða viðbótarstyrk fyrir börn tekjulágra foreldra.
- 02Draga úr skutli barna í 1.–4. bekk í frístundir með því að styðja íþróttafélög til að bjóða upp á frístundaakstur.
- 03Efla félagsmiðstöðvar, sérstaklega fyrir 10–12 ára, og fjölga ungmennahúsum fyrir 16–30 ára.
- 04Tryggja opnun og mönnun frístundaheimila 1.–4. bekkjar til kl. 17:00.
- 05Fjölga sumarnámskeiðum og plássum í sumarfrístund svo öll börn komist að.
- 06Tryggja áframhaldandi rekstur og eflingu flakkandi félagsmiðstöðvar í samstarfi við ríkið.
- 07Veita Reykjavíkurráði ungmenna launaðan áheyrnarfulltrúa með tillögurétt í nefndum og ráðum borgarinnar til að auka aðgengi barna að ákvörðunartöku borgarinnar.
- 08Stöndum vörð um hinsegin félagsmiðstöðina.
